Gjafalisti

Skilmálar

Síðast uppfært 19. september 2026

Stutt og skýrt: Gjafalisti er ókeypis tól til að búa til og deila gjafalistum. Með því að nota það samþykkir þú eftirfarandi.

Rekstraraðili

Gjafalisti er rekinn af DEC ehf., kt. 471119-1720.

Þjónustan

Gjafalisti selur ekkert, tekur ekki við greiðslum og ber ekki ábyrgð á vörum, verði, lagerstöðu eða afhendingu verslana. Verð á lista er til viðmiðunar; rétt verð er alltaf hjá versluninni.

Frátekt er loforð milli gesta og eigenda lista, ekki pöntun. Peningagjafir fara beint á milli gesta og eigenda; Gjafalisti kemur ekki að þeim.

Það sem þú berð ábyrgð á

Að efni sem þú setur á lista sé löglegt og þitt að deila, að þú deilir aðeins þeim reikningsupplýsingum sem þú vilt að allir með hlekkinn sjái, og að þú misnotir ekki þjónustuna, til dæmis með sjálfvirkum fyrirspurnum eða með því að taka frá gjafir í óheiðarlegum tilgangi.

Það sem við lofum

Að gera okkar besta til að halda þjónustunni gangandi og gögnunum þínum öruggum. Þjónustan er veitt eins og hún er, án ábyrgðar á ótrufluðum rekstri. Við getum fjarlægt efni eða lokað aðgangi sem brýtur gegn þessum skilmálum.

Breytingar og lög

Við getum uppfært skilmálana og látum vita af verulegum breytingum á vefnum. Um skilmálana gilda íslensk lög.

Hafðu samband: hallo@gjafalisti.is