Persónuverndarstefna
Síðast uppfært 19. september 2026
Gjafalisti safnar eins litlum upplýsingum og hægt er. Hér er útskýrt á mannamáli hvað við geymum, hvers vegna og hvernig þú losnar við það.
Ábyrgðaraðili
Gjafalisti er rekinn af DEC ehf., kt. 471119-1720, sem er ábyrgðaraðili persónuupplýsinga sem unnið er með á gjafalisti.is.
Hvað við geymum
Um eigendur lista: netfang (eða auðkenni frá Google eða Apple), dulkóðað lykilorð, tungumál og listana sjálfa – nöfn, dagsetningu, kveðju, gjafir og, ef þið kjósið, reikningsupplýsingar fyrir peningagjafir.
Um gesti: nafnið sem gestur skrifar þegar hann tekur frá gjöf, hvaða gjöf og hversu margar. Ekkert annað. Gestir þurfa ekki aðgang.
Tæknileg gögn: vafrakökur sem halda þér innskráðri/innskráðum, muna tungumál og muna hvaða gjafir þú tókst frá svo þú getir hætt við. Við notum engar auglýsinga- eða rakningarkökur.
Hverjir sjá hvað
Allir sem hafa hlekk á lista sjá listann, nöfn gesta sem hafa tekið frá gjafir og reikningsupplýsingar ef eigandi hefur skráð þær. Listar eru ekki skráðir hjá leitarvélum.
Eigendur lista sjá ekki hverjir tóku frá hvaða gjöf fyrr en þeir velja sjálfir að birta það.
Vöruupplýsingar og myndir
Þegar hlekkur á vöru er límdur sækjum við heiti, verð og mynd af síðu verslunarinnar. Myndirnar birtast beint frá versluninni og tilheyra henni. Verslanir sem vilja ekki að vörur þeirra birtist geta haft samband og við bregðumst strax við.
Vinnsluaðilar
Gögn eru hýst innan EES: gagnagrunnur og innskráning hjá Supabase (Írland) og vefurinn hjá Vercel (Dublin). Ef mynd er notuð til að bera kennsl á vöru er hún send til Anthropic til greiningar og ekki notuð til annars.
Hversu lengi
Listar og aðgangar eru geymdir þar til þú eyðir þeim. Þú getur eytt lista í stillingum hans og aðganginum undir „Aðgangurinn minn“. Eyðing er endanleg og tekur gildi strax.
Réttindi þín
Þú átt rétt á að fá aðgang að gögnum þínum, láta leiðrétta þau eða eyða þeim, og að kvarta til Persónuverndar (personuvernd.is). Gestir sem vilja láta fjarlægja nafn sitt af lista geta hætt við frátektina eða haft samband við okkur.
Hafðu samband: hallo@gjafalisti.is
Börn
Þau sem eru yngri en 13 ára mega ekki stofna aðgang. Foreldri eða forráðamaður getur stofnað og séð um lista fyrir þeirra hönd.